Thursday, May 18, 2006

Flottust engin spurning!!!!!!



Glatað að Silvía komst ekki áfram ... Bosnia það komst !! er þetta bara ekki orðin svona klíka ?? Við munum ábyggilega ekki komast auðveldlega í aðalkeppnina hummm,, Og vá við vorum bara púuð niður hehe ....Naumast hún Silvía okkar er umdeild :)
En flutningurinn var samt ekki eins góður og hún hefur verið að gera :/
Hún var samt langflottust þarna og finnarnir og litháin (veit ekki hvernig það er skrifað :)
Hvað á maður þá að gera um helgina :/ ég sem ætlaði að hafa svona eurovisionpartý ,matarboð' og alles .....
En hafið það gott um helgina :))))))


Monday, May 15, 2006

iDOL HVAÐ..

IDOL SMÆDOL ÖMURLEGT !!!!!!!! CHRIS ER FARINN !!!!!

Saturday, May 13, 2006

Bullur

Ef fólk er ekki orðið crazy !!! Ég og Anna vorum að horfa á green street hoolegans eða hvernig það er nú skrifað og þetta er bara ruglað fólk ... Það sem þeir gera er ógeðslegt maður hefur nú horft á þætti s,s 60 min og leikmaður skotinn til bana frá suður ameríku fyrir að klúðra leik ,sprengjum hent inná velli og fleira .. í þessari mynd var sýnd góð mynd af hvernig þetta virkar allt og það er rétt að auðvitað eru þeir tilbúnir að gera allt ,,þeir ráðast á fjölskyldurnar, svo desperate eru þeir .. Þetta er þrusugóð góð mynd !!! Maður fer bara einhvern veginn að spá meira í þessu ,þetta er hrikalegt að fólk skuli falla inni í svona bulluhópa ..Það er bara spurning hvort maður þorir að fara á leik í London ;/ nei ég segi nú bara svona ...

Friday, May 12, 2006

CArbuys:::

Það sem ég hef komist að er að þeir sem ætla að kaupa notaða bíla ,,ættu að eltast við bíla frá vestmannaeyjum eða af gömlu fólki :)
Ég var í annað sinn að njóta góðs af því hehehe ...
Var nefnilega að kaupa eldgamlan bíl eða "91 model og kagginn er ekki keyrður nema
AÐEINS 78000 km :)
Það var nefnilega ein gömul sem átti hann til 2001 0g hann var þá ekinn 43000km og svo keypti strákur hann og svo ég :)
En ég er barasta í góðum málum held ég :)))))

Friday, May 05, 2006

Jæja þá er það komið :)

LOKSINS LOKSINS !!!

Núna er húsið okkar komið á sölu og á frábæru verði :)))))
http://mbl.is/mm/fasteignir/fasteign/?eign=201248

Fasteignasalinn kíkti til okkar í gær og myndaði þetta draumahús hehe ,svo núna er bara að bíða og vona að einhver falli fyrir þessu fallega húsi ,ég mæli eindregið með því ..þetta er frábær staður og alles barnagæsla ,leikskóli og barnaskóli rétt hjá voðavoða sniðugt hús :)
Svo núna bara allir að koma með tilboð :))))

Wednesday, May 03, 2006

Appelsínur lafandi í nylonsokkum..

Alveg getur maður grenjað yfir sumum umræðum á barnalandi hehe ..
Það er einni sem vantaði bikiní sem virka þannig að brjóstin séu ekki eins og appelsínur lafandi í nylonsokkum ,, hún var ekki viss um að þetta væru egg eða bara spælegg hehehe þessar elskur ..
Svo var ég líka að lesa link hjá þeim um draugagang og vá á maður bara ekki að vera heppinn að sjá ekki svona hluti .. og hrikalegt hvað mörg börn verða vör við þetta .. ein sem bjó hjá tengdó og baðherbergið var innst inni á ganginum og á kvöldin eða á nóttinni þegar hún þurfti að fara á wc þá stóð alltaf gömul kona þar íjúú........ Ég held ég myndi nú bara hlaupa inní herbergi aftur og læsa ...



Sonur minn 2,5 er sjáandi. Eftir að við fluttum norður hef ég lítið orðið vör við neitt í húsinu annað en bara gott. Er sjálf næm. En eitt kvöldið heyrði ég hann kjökra inn í herberginu sínu eftir háttatíma eins og svo oft áður í gamla húsinu. Ég fór inn í herbergið og það var eins og að ganga á vegg. Það var svo mikil vanlíðan í herberginu. Ég varð alveg öskureið og þrumaði yfir "þau" að ég kærði mig ekki um návist þeirra þegar þeim liði svona. Ég ætlaðist ekki til að þau yfirgæfu húsið því þau hefðu sama tilverurétt og við hérna. EN! Þau skyldu sko gera svo vel og taka tillit til að barnið væri bara tveggja ára og gerði sér ekki grein fyrir hvað hann væri að sjá og skynja og þau skyldu halda sig til hlés og gera sig ekki sýnileg honum. Þau "gegndu" mér og ég hef ekki orðið vör við neitt svona í hálft ár :) Þetta var hverja nótt þar sem við bjuggum áður.


Ég er skyggn. Hef verið skyggn frá því ég man eftir mér. Og já ég hef oft lent í þessu og enn meira. Ég hef alltaf þurft að loka mér á hverjum degi. Það sem er gott fyrir þig að gera er að birja á því að láta sem þú takir ekki eftir þessu og tala ekki um þetta á heimilinu. Síðan er gott að fara með bænir yfir börnunum áður en þau fara að sofa og loka herberginu, þá er ég ekki að tala um að lokka hurðinni heldur að hugsa þer vegg fyrir hurðaopinu og vörður sem stendur þar. Ég veit að þetta hljómar furðulega en hugsunin er svo sterk. Ef þetta virka ekki þá er augljóst að það sé einhver sem vill láta vita af sér og getur verið að reyna að koma einhverjum skilaboðum til skila. En það er erfitt fyrir þig að skilja hvað það er, og þess vegna myndi ég ráðleggja þér að tala við miðil og fá hann til að koma. ég þurfti oft að gera það þegar ég var á unglingsárunum. En oft er þetta bara látinn ættingi eða vinur að láta vita af sér, en í flestum svoleiðis tilvikum gráta börnin ekki, þannig að þú þart að skoða þetta vel, ég er samt ekki að segja að þetta sé eitthvað slæmt. Ef ekkert af þessu virkar þá er gott fyrir þig að tala sjálf við hann og láta vita að þú vitir af honum og hreinlega biðja hann um að láta ykkur í friði, það virkar stundum. En ekki gleima að tala við vendareinglana þína og biðja þá að vaka yfir ykkur það er ekki af ástæðulausu að við höfum fólk sem fylgir okkur. Og mundu að ef börnin fara að gráta ekki verða hrædd því börnin finna það um leið. En ef eitthvað meira gerist endilega láttu þá heira í þér, ég vona að þetta hjálpi. Gangi þér vel

Ég hef verið að lenda í ýmislegu mjög dularfullu undanfarið,nýlega þá var égað skúra og sneri bakinu inní herbergið mitt,þegar égfæ batterí í bakið,gat hvergi komið s.s engin reykskynjari eða neitt þar sem þar sem það gat hafa verið, myndir að detta ofan af sjónvarpinu aldrei dottið fyrr enn núna ,það var kveikt á sjónvarpinu hér um daginn og hækkað í botn og svo lækkað aftur og slökkt á því,ég var ein heima þá með yngstu stelpuna mína og við vorum niðri, sjónvarpið á efri hæðinni og margt skrítið skeð undanfarið,ég veit ekki hver þetta getur verið enn þetta er mjög spúkí,og ég er oft mjög hrædd:/

Tuesday, May 02, 2006

Gömlu hjónin fara á ball.

Vá ég er bara orðinn letibloggari strax hehe..
En um helgina skellti ég mér í þetta fína afmæli til Jóhönnu rosa flott og ekki klikkaði kvöldið eða hitt humm.. Byrjuðum á að fá far hjá Rósu og Steini gleymir símanum ,við snérum við og náðum í hann svo förum við og keypum miða á ballið og þá föttuðum við að pakkinn sjálfur gleymdist og líka myndavélin sem var sko búin að vera í hleðslu allan daginn svona fyrir kvöldið hehe.. Ég segi nú bara guð hjálpi okkur þegar við eldumst :)
Ballið var annars frábært en LÖNG bið eftir leigubíl ,,,ég held að ef önnur leigubílastöð kæmi í townið þá myndi hún bara meika það feitt ,,ég ætti kannski bara að stofna fyrirtæki :) og verða rík ..ALLSEKKI vitlaust ..

Úff spáið ef maður yrði svona gamall :/